|
laugardagur 27.12.08 16:31
Íslenska, Molar
Smyglarar óskast
Ég var að koma úr ríkinu. Þar keypti ég 2 kippur af bjór og einn fleyg af drasl viskíi. Þetta kostaði rétt tæpar 7 þúsund krónur takk.
Ég vil biðja þá sem þekkja einhverja áfengissmyglara að láta mig endilega vita, við þetta er ekki búandi.
|
|
laugardagur 27.12.08 12:42
Íslenska, Fjölmiðlar
Ríkiskirkjufréttaflutningur hjá Mbl.is
Þessi frétt hefur verið á áberandi stað á mbl.is í svona viku núna: http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/12/24/heidarlegur_prestur_eydilagdi_jolin_fyrir_bornunum/Fyrirsögn fréttarinnar er Heiðarlegur prestur „eyðilagði jólin fyrir börnunum“ en ætti auðvitað að vera „Heiðarlegur prestur“ eyðilagði jólin fyrir börnunum. Presturinn er svo heiðarlegur að hann þarf að útskýra fyrir börnunum að jóli sé ekki til en það sé hins vegar ósýnilegi kallinn á himninum að sjálfsögðu. Hvar værum við án presta og sannleiksleitar þeirra.
|
|
þriðjudagur 09.12.08 21:25
Íslenska, (Ó)stjórnmál
Er Björgvin G. Sigurðsson strútur?
Ég get ómögulega skilið hvernig það hefur farið framhjá Björgvini að "fyrirtækið KPMG hefði verið fengið til þess að sinna verkefnum fyrir skilanefnd gamla Glitnis í kjölfar bankahrunsins" eins og segir á mbl.is. Sá fylgist aldeilis vel með, er með puttann á púlsinum eins og menn segja. En þeir eru andskoti margir sem nú hamast við að hindra að upp komist hversu ótrúlega djúpstæð spillingin hefur verið hjá "okkur". "Gegnsætt" og "uppi á borðinu" virðist allavega hafa dularfulla merkingu.
|
|
mánudagur 24.11.08 01:39
Íslenska, Molar, (Ó)stjórnmál
Nýtt stjórnmálaafl
Væri ekki sniðugt fyrir þá sem hyggjast nú stofna nýjan stjórnmálaflokk að skíra hann "Auðir og ógildir seðlar"?
|
|
fimmtudagur 20.11.08 22:26
English, Computers, Gaming, Programming
Default Settings Only
Ok so I'm officially a complaining blogger only. With that out of the way, let me start complaining.
It seems to me no software gets properly beta tested anymore. I cannot run Winamp anymore on my work computer, most likely explanation is that I refuse to install all the gimmick that comes with it.
I cannot update Windows by selecting "Custom", while "Express" works.
I cannot change all keys in brand new and super hyped games like Far Cry 2 and Fallout 3.
So while Default settings work in all of the above cases, custom settings don't. Pisses me off, that's all.
|
|
fimmtudagur 20.11.08 16:19
Íslenska, (Ó)stjórnmál
Siv Samstaða
Það er merkilegt hvað það fer ógurlega í taugarnar á Siv Friðleifs þegar stjórnin talar ekki einum rómi.
Sérstaklega á þessum síðustu og verstu tímum. Það er ekki skuldsetning þjóðarinnar, aukið atvinnuleysi eða fjöldagjaldþrot sem pirra hana Siv. Bara að helvítis stjórnin væri nú sammála, þá væri þetta allt í góðu.
|
|
mánudagur 03.11.08 15:28
Íslenska, (Ó)stjórnmál
Krepputal
Mér finnst kreppuumræðan vera á villigötum.
Í fyrsta lagi þá er algjör óþarfi að hafa kosningar nema við fáum nýtt fólk með nýjar hugmyndir og nýtt viðmót á þing. Flestir forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hafa verið staðnir að lygum undanfarið, Geir Haarde ítrekað. Mér er nokk sama hvernig fólk rökstyður það að nauðsynlegt hafi verið að vinna að lausn kreppunnar í kyrrþey. Það breytir því ekki að forsætisráðherra sem lýgur ítrekað að þjóðinni er drasl sem skal fara með beint á haugana.
Fólk er almennt rétt að byrja að átta sig á alvarleika stöðunnar, flestir virðast hafa haldið að kreppan væri að verða búin... þegar hún er varla byrjuð. Svo segja menn, þetta reddast og þetta verður orðið bærilegt aftur 2010. Það er í besta falli einfeldningsleg óskhyggja.
Geir segir ekki tímabært að leita blóraböggla. Ég segi við Geir, það er aldrei tímabært að leita blóraböggla. Hins vegar er ekki eftir neinu að bíða með rannsóknir. Verst að þá verða menn auðvitað látnir rannsaka sjálfa sig og syni sína. Það er líka ótrúlegt að ekki sé skipt um áhöfn hjá Seðlabankanum, það er hárréttur tími til þess núna. En það sannar líka að hér standa ekki til neinar breytingar aðrar en þær sem almenningur mun geta þvingað fram í kosningum. Þeir breytingar verða minniháttar. Eins og að bera krem á sig þegar maður þarf í raun að fara í uppskurð.
Þeir sem munu kjósa Sjálfstæðis- eða Framsóknarflokk í næstu kosningum ættu svo að sæta geðrannsókn.
Í landinu eru svo engir fjölmiðlar til taks. Allir í eigu Jóns Ásgeirs og Björgólfs nema einn sem tilheyrir bakkabræðrum. Þá er eftir ríkisfjölmiðillinn. Þar virðist ekki vera metnaður til að kafa ofan í kreppuna og aðdraganda hennar. Mér finnst kostulegt að það þurfi að taka það sérstaklega fram í fréttum að "næstu daga ætli ríkissjónvarpið að vera með stuttar fréttaskýringar". Það kemur auðvitað til vegna þess að það er jú fréttnæmt. Fjölmiðlar hér eru fyrst og fremst í upplestri fréttatilkynninga ásamt því að lepja eitthvað upp úr erlendu pressunni. Fjölmiðlarnir brugðust í aðdraganda kreppunnar og nú bregðast þeir í kreppunni sjálfri og munu væntanlega halda því áfram.
Það versta er kannski að þeir eru enn að leita til sömu ljótu hálfvitanna. Af hverju í ósköpunum er Hannes Hólmsteinn fenginn ítrekað í kastljós þessar vikurnar? Hefur einhver áhuga að hlusta á vælið í honum? Ég get ekki ímyndað mér það, nema jú auðvitað einn af okkar ástsælu seðlabankastjórum.
Ég ítreka, endurtek og undirstrika: Nýtt fólk og nýjar hugmyndir takk.
|
|
föstudagur 24.10.08 13:52
Íslenska, (Ó)stjórnmál
Aliber: Segir flón stjórna Íslandi
Sjá þessa frétt
En er þetta ekki bara ágætis hugmynd? Það væri hægt að velja alþingismenn á fjögurra ára fresti upp úr þjóðskrá.
Þarna væri hægt að slá fullt af flugum í sama höfuðið eins og Bibba á Brávallagötunni sagði.
T.d er hægt að tryggja að alþingismenn séu í raun þverskurður af þjóðinni ef áhugi er fyrir því. Það er líka hægt að tryggja jafnrétti milli kynja og kynslóða. Eins er hægt að tryggja að menn með ákveðna menntun sitji á þingi, núna er t.d. enginn fjármálafræðingur þar, en hins vegar 13 lögfræðingar. Þurfum við 13 lögfræðinga á alþingi?
Núverandi fulltrúalýðræði virkar heldur ekki eins og til stóð. Það heyrir til algjörra undantekninga að alþingismenn séu fyrst og fremst á þingi til að þjóna almenningi. Það þykir heldur ekkert tiltökumál að segja: "Auðvitað er maður í stjórnmálum til að hafa áhrif" -> lesist völd.
Kostir sem svona "jury duty" módel hefur eru augljósir:
- Við losnum að stórum hluta við að hafa fólk á þingi sem vill endilega vera þar. Það er kostur, trúið mér. Þeir sem sækjast eftir völdum eru akkúrat þeir sem ekki skyldu fá þau.
- Við losnum líka við flokkspólitískar skotgrafir. Flokkapólitík verður að stórum hluta ef ekki alveg úrelt við þessa breytingu.
Þeir sem þegar eru komnir á þing geta svo boðið sig fram til ráðherraembætta, og þar mundi þjóðin einfaldlega kjósa um ráðherra.
Sjáið þið fyrir ykkur að þá yrði dýralæknir fjármálaráðherra? Tæplega.
Vissulega er þetta dramatísk breyting á uppsetningu fulltrúalýðræðis, en er ekki einmitt komin þörf á slíkar breytingar? Er ekki tímabært að hugsa örlítið út fyrir kassann?
Hér að neðan er lausleg úttekt á menntun alþingismanna. Fyrir neðan fjölda hvers flokks er svo önnur menntun sem fólk innan þess hóps sér ástæðu til að taka sérstaklega fram á vef alþingis.
|
Ekki lokið neinum prófum? |
Gagnfræðapróf |
Kvennaskólapróf |
Iðnskólapróf |
|
2 |
1 |
1 |
1 |
|
Stúdentspróf |
Verslunarpróf |
Kennari |
Skipstjórn |
|
5 |
1 |
3 |
2 |
|
|
|
Íþróttakennari |
Lögfræði |
|
|
|
|
Kennsluréttindi |
|
Sjúkraþjálfun |
Sjúkraliði |
Hjúkrun |
Dýralæknir |
|
1 |
1 |
2 |
1 |
|
|
|
Opinber stjórnsýsla |
Fiskisjúkdómar |
|
Líffræði |
Lífeðlisfræði |
Stýrimaður |
Búfræði |
|
1 |
1 |
1 |
2 |
|
|
Fiskeldi |
|
|
|
Sagnfræði |
Hagfræði |
Lögfræði |
Stjórnmálafræði |
|
4 |
4 |
13 |
4 |
|
Heimspeki |
Lögfræði |
Hagfræði |
|
|
Stjórnmálafræði |
Rússneska |
Verðbréfamiðlun |
|
|
Bókmenntir |
Alþjóðastjórnmál |
|
|
|
Sálfræði |
Guðfræði |
Íslenska |
Leikari |
|
1 |
1 |
1 |
1 |
|
|
|
íslenskar bókmenntir |
|
|
Garðyrkja |
Stærðfræði |
Rekstrarfræði |
Byggingartæknifræði |
|
1 |
2 |
1 |
1 |
|
|
Eðlisfræði |
|
Húsasmíðar |
|
|
Tölvufræði |
|
|
|
|
Alþýðutryggingar |
|
|
|
Vélaverkfræði |
Kennslu- og uppeldisfræði |
|
|
|
1 |
2 |
|
|
|
|
mánudagur 20.10.08 01:08
Íslenska, (Ó)stjórnmál
Jón Baldvin
Af hverju talar enginn við Jón Baldvin nema Egill Helga?
Það er sár skortur á skarpgreindum mönnum sem segja satt á Íslandi í dag og hefur verið í langan tíma.
|
|
mánudagur 13.10.08 01:13
Íslenska, Fjölmiðlar
Metnaðarleysi fullkomnunar
Já eða fullkomið metnaðarleysi kannski. Stundum held ég að 365 sé að reyna að ná 100% metnaðarleysi. Nú dugar þeim ekki lengur að senda út fréttir, íþróttir og annað efni í röngum hlutföllum. Nú eru myndbirtingar á vísi undir sama metnaðarleysishatti.
Brilliant.
Hvar fær maður að sjá boltann á næsta tímabili, ætlar Geir að opna aukarásir á rúv fyrir okkur?
|
|
mánudagur 06.10.08 21:48
Íslenska, (Ó)stjórnmál
6.10.2008
Dagurinn í dag, dagurinn á morgun. Þetta er búinn að vera langur og strangur dagur. Þó hann hafi verið erfiður víða í fjármálaheiminum, þá eigum við þó sennilega heimsmetið og þá þarf ekki einu sinni að miða við höfðatölu.
Ég fór óvenju snemma í ból í gær og var vaknaður fyrir allar aldir eða um hálf fjögur. Byrjaði strax á að leita frétta, en lítið var af þeim. Undir morgun fóru einhverjar fundafréttir að berast og um hádegi var orðið ljóst að það var eitthvað verulega dramatískt að fara að gerast.
Ég var nokkuð viss um að bankarnir væru komnir í þrot. Það reyndist því miður nokkuð nærri lagi. Þetta var ekki mikill vinnudagur, allur dagurinn hefur farið í að fylgjast með þróun mála. Það hafa verið ávörp, viðtöl, blaðamannafundir og svo frv. Já fylgjast með þróun mála og hugsa. Í dag hefur mikið verið hugsað og aldrei þessu vant ekki um forritun eða vinnu yfir höfuð. Þetta er nú meiri dagurinn. En skyldu þeir næstu kannski verða enn svartari?
Það er reyndar flest sem bendir til þess. Mest óttast ég að fjármálakerfi heimsins riði til falls. Það er ekki möguleiki að ímynda sér hvers konar kreppu við verðum þá að ræða, en það verður sko ekkert grín. Þetta verður nógu erfitt fyrir okkur hér á Íslandi næstu misserin án þess að svoleiðis heimskreppa komi til.
Bara í dag hrapaði krónan yfir 12%. Ætli við verðum ekki að kljást við óðaverðbólgu hér á næstunni. Ég er farinn að sjá eftir að hafa ekki fylgt bónusráðum og hamstrað dósamat til geymslu í kjarnorkukjallaranum. Það er reyndar spurning um að taka kaupæði mikið og eyða þeim fáu krónum sem maður á áður en þær verða algjörlega verðlausar.
En menn eru ansi uppteknir við að tala um samstöðu og hvetja til bjartsýni. Ég sé enga ástæðu til bjartsýni. Það helst bara ekki í hendur að neytendur gjörbreyti sínum háttum en við búum samt áfram við óbreytt atvinnuástand. Þegar fólk fer að spara þá fækkar það áskriftum að fjölmiðlum, hættir að fara út að borða, stillir kaupum afþreyingarefni sem og tækjum til afþreyingar í hóf ásamt því auðvitað að sleppa því að henda sófanum bara til að kaupa nýjan í öðrum lit.
Þegar við svo bætum ofan á þetta algjörum skorti á lánum, þá er niðurstaðan bara ein. Gjaldþrot og atvinnuleysi. Bjartsýni, nei ætli það.
Pólitíkin Í stjórnmálunum er í raun bara einn maður sem þarf að skammast út í þegar þessi dagur er að kveldi kominn. En það er samt einn. Guðni Ágústsson sá þetta sem kjörið tækifæri til enn einnar "Við Framsóknarmenn" frasaveislunnar. Við Framsóknarmenn höfum lengi varað við þessu... bla bla bla bla. Var ekki einhver búinn að segja þér að þegja Guðni? Það er sennilega besta ráð sem þú munt fá í þessu lífi. Framsóknarmenn ásamt ýmsum kjölturökkum hafa samt þegar fundið lausn á þessum efnahagsvanda og viti menn: Álver! Það væri brilliant að búa í heimi þar sem lífið væri í framsóknarlitum, álver lausn á einu og öllu. Reyndar var álver ekki lausnin fyrir þarsíðustu kosningar. Nei þá var málið 90% húsnæðislán. Það reyndist nú vel.
Almenn leiðist mér gríðarlega leit að sökudólgum. Sérstaklega leiðist mér tilhneyging fólks til slíkrar leitar. Sérstaklega leiðist mér fólk sem bregst við öllum mistökum með orðunum: "Hver gerði þetta!". En í svona málum er þó augljóslega nauðsynlegt að skoða málin ofan í kjöl og jafnvel að líta undir hann. Þar er ég sammála Steingrími J. Ég man nú eftir að hafa verið í partíi þar sem innvígðir Samfylkingarmenn hlógu mikið að Steingrími og höfðu um það stór orð hvernig efnahagsstjórn landsins mundi nú enda í helvíti ef hann fengi að halda um taumana. Þeir hlæja trúlega ekki í dag.
Steingrímur vill líka reyna að hafa upp á þeim peningum sem búið er að sjúga út úr bönkunum í formi starfslokasamninga og ýmiskonar bónusgreiðslna. Aftur er ég sammála Steingrími. Mér finnst það eðlilegt og sanngjarnt í alla staði.
Framhaldið. Rétt er að kaupa sér nauðsynjar fyrir þær krónur sem í veskinu eru. Ef einhver afgangur er þá skaltu spreða honum í einhvern lúxusvarning ef þú finnur hann enn á viðráðanlegu verði. Ég ætla t.d. að kaupa mér tölvuskjá á morgun nema hann hafi þegar hækkað eftir gengisfall dagsins. En svo tekur við algjör sparnaður og nauðþurftalífsstíll. Auðvitað verður maður að hætta að reykja og drekka, og kannski neyðist maður til að hætta að éta líka.
En nú er hafinn fundur á Alþingi þar sem stendur til að samþykkja þessi neyðarlög. Ég ætla að horfa á hann.
Góðar stundir.
|
|
sunnudagur 27.07.08 13:43
English, Computers
Modern junkmail
Modern junkmail is often absolutely pointless. Check out this message I got today:
rhesus rockefeller adversary angelfish sob angelfish? coup, the stigmata. nibble kingston bootlegging digitalis doubtful arthritis, rockefeller european stigmata giveaway doubtful clang. cox doberman. What would be the point in sending this text to me? The message doesn't make sense in any way and there is no link either. This is the crap that's filling up the tubes of the internets today.
|
|
fimmtudagur 26.06.08 02:51
Íslenska
Kapítalismi
Kapítalismi er í raun það sem klæðir keisara voran. Nýju flottu fötin hans.
Eins og dæmið virkar í dag, þá er nánst of margt að, til þess að það taki því að benda á eitthvað eitt. Það er auðvitað hægt að segja: "það vantar skó", en þá er maður bara að reyna að vera kurteis. Það vantar nefnilega líka nærbuxur og svo frv.
Nú þegar menn eru rétt u.þ.b að hætta að nenna að tala um að kommúnisminn sé dauður, þá er rétt að benda á að sömu örlög bíða kapítalismans.
Ég trúi því bara ekki að fólk sætti sig við hann til lengri tíma litið.
|
|
fimmtudagur 19.06.08 13:56
Íslenska
Einn stærsti plötusnúður í heimi
Á baksíðu 24 stunda í dag: "Þetta er einn stærsti plötusnúður í heimi" segir Björt Sigfinnsdóttir, einn af skipuleggjendum Lunga...
En hversu stór er hann? Kannski vel á þriðja metra?
|
|
föstudagur 13.06.08 23:36
English
The best defence is offence
Van Basten has proven this once and for all.
The best defence is offence! :)
|
|
þriðjudagur 03.06.08 19:51
Íslenska, Molar
Ísbjörn
|
|
fimmtudagur 29.05.08 01:07
Íslenska
Techno Tinni
Ég ætlaði að skjóta þessu inn þegar ég las þetta en steingleymdi því. Einhver "joi" kallar Friðrik Ómar sem sé Techno Tinna í athugasemd við silfurpóst Egils hér: http://eyjan.is/silfuregils/2008/05/24/austantjalds/#commentsMig langaði bara svo að lýsa aðdáun minni á þessu gælunafni. Það er líka með fullri virðingu fyrir Friðriki Ómari, því að það er á engan hátt neikvætt að vera líkt við Tinna. Techno fornafnið er svo bara skemmtilegt skraut sem allir skilja, en gerir gælunafnið að demanti. Techno Tinni, frábært nafn.
|
|
þriðjudagur 27.05.08 15:39
English, Computers, Programming
Untitled Page
When you create a new page (web form) in visual web developer, why oh why is autoeventwireup set to false, and why oh why is the default title "Untitled Page"
1. Nobody wants a page with the title "Untitled Page" 2. If it has the title "Untitled Page", it isn't really untitled is it?
:)
|
|
sunnudagur 25.05.08 18:43
Íslenska, (Ó)stjórnmál
Að tala eða öskra
Horfði á Silfur Egils í dag.
Merkilegt með hann Guðjón A. Kristjánsson, hann talaði ekki neitt í þættinum. En hann öskraði hins vegar heilmikið.
Er þetta merki um að maðurinn sé að missa heyrn eða kannski eitthvað annað?
|
|
föstudagur 16.05.08 23:08
Íslenska, (Ó)stjórnmál
Blogburður um dómgreind bandaríkjaforseta
Nei nei, það má ekki, má alls ekki... því það er dónaskapur að segja bandaríkjaforseta heimskan. Þó hann sé það. Hann er heimskur. En John McCain má samt efast um dómgreind Obama: http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/05/16/obama_er_abyrgdarlaus/Reyndar er ekkert endilega að marka þýðingu mbl.is :) John McCain er allavega ekki verulega heimskur. Eins og Bush. Hann er heimskur. Verulega. Heimskur. Obama væri bara svo miklu betri fyrir heimsbyggðina alla.
|
|
föstudagur 09.05.08 17:51
Íslenska, Molar
*Nýtt á Íslandi*
*Nýtt á Íslandi* Goran Superform matartaska!Hvernig fór fólk eiginlega að því að lifa án hennar spyr maður sig núna. Rúsínan í þessari annars bragðdaufu Krypton pylsu er svo auðvitað "New Page 1".
|
|
þriðjudagur 06.05.08 22:18
(Ó)stjórnmál
Borgarstjórn hin þriðja
Ólafur F: Við tímum ekki að eyða peningum í mannréttindi. Hanna Birna: Alveg sammála Ólafi, við skulum ekki spara peninga í mannréttindi.
Ólafur F: Þessi verðlaunatillaga er ómöguleg. Gísli Marteinn: Alveg sammála Ólafi, þetta er fínasta tillaga.
Svona samstíga borgarstjórnarmeirihluti getur hreinlega ekki sprungið.
|
|
þriðjudagur 06.05.08 12:39
Molar
Viðbót við heilbrigðiskerfið
Ég fékk þessa fínu hugmynd núna þegar ég hlustaði á Guðlaug Þór heilbrigðisráðherra ræða um stöðu Framsóknarflokksins.
Væri ekki hægt að bjóða kjósendum Framsóknarflokks ókeypis sálfræði- og/eða geðlæknisþjónustu?
Sérstaklega mikilvægt er að þeir sem ekki hafa kosið framsókn hingað til, en dettur það í hug af einhverjum ástæðum, geti strax leitað sér aðstoðar.
|
|
mánudagur 05.05.08 12:29
Molar
Allt verður gott í framtíðinni
Þetta hefur fólk lengi haldið. Er það þess vegna ekki magnað að árið 2008 sé við lýði herforingjastjórn sem heimilar ekki alþjóðlegum hjálparstofnunum að koma íbúum landsins til aðstoðar.
|
|
fimmtudagur 01.05.08 11:52
Fótbolti
Fullnaðarsigur enskrar knattspyrnu
England vann í gær fullnaðarsigur á öðrum evrópuþjóðum í knattspyrnu. Í úrslitum meistaradeildar keppa tvö ensk lið. Þetta hittist meira að segja svo skemmtilega á að þessi tvö lið eru einmitt tvö efstu liðin í ensku úrvalsdeildinni. Það sem er ekki síður merkilegt er að ekkert enskt lið var slegið út úr keppninni af liði frá öðru landi, þ.e. það þurfti alltaf enskt lið til að slá út enskt lið.
Með lítilsháttar einföldum mætti því segja að öll ensk lið séu betri en öll önnur evrópsk lið. En í fullri alvöru þá er augljóst að enski boltinn stendur vel að vígi nú um mundir. Ég tel það fjarstæðukenndan farsa að ætla sér að setja einhverjar reglur um fjölda útlendinga í liðum. Slíkt mundi ekki skila neinu fyrir enska landsliðið að mínu viti. Það sem í raun mundi gerast er einfaldlega það að gæðum úrvalsdeildar myndi hraka og hún yrði e.t.v. í svipuðum gæðaflokki og kókdeildin er núna.
Maður verður nefnilega ekkert betri í fótbolta með því að fjarlægja alla þá bestu af vellinum, maður lítur bara út fyrir að vera skárri :). Vonandi verður því ekki reynt að grípa til slíkra aðgerða.
Það er óneitanlega dálítið sérstakt fyrir aðdáendur Man. U. og Chelsea að þurfa að ferðast til Moskvu til að sjá þessi tvö ensku lið leika knattspyrnu.
|
|
föstudagur 25.04.08 18:37
Íslenska
Það læra börnin sem fyrir þeim er haft
Ég veit að það þykir ægilegur smáborgaraháttur að fíla ekki mótmælendur. En ég hef bara afar takmarkaða samúð með vörubílstjórum. Hvernig á að innheimta peninga fyrir vegagerð, með nefskatti e.t.v?
Bein skattheimta er sanngjarnari, svo einfalt er það. Annars ætti olía fyrir stóra bíla kannski að vera talsvert dýrari til að sanngirni næðist fram í þessu máli.
En auðvitað eru þessir bílstjórar einkar skemmtilegar fyrirmyndir eins og nú er að koma í ljós.
|
|
fimmtudagur 14.02.08 19:19
English
Select a canidate 2008 - a tie...
|
 |
Hillary Clinton Score: 73 |
Agree Iraq Taxes Stem-Cell Research Health Care Abortion Social Security Line-Item Veto Energy Marriage Gun Control Environment
|
Disagree Immigration Death Penalty Education
|
 |
Barack Obama Score: 73 |
Agree Iraq Taxes Stem-Cell Research Health Care Abortion Social Security Line-Item Veto Energy Marriage Gun Control Environment
|
Disagree Immigration Death Penalty Education
|
-- Take the Quiz! -- |
|
|
miðvikudagur 06.02.08 00:15
English, Programming
A huge update
We didn't see any special reasons to keep updating until we reached the beta stage, so it's been a while. Today we reached a milestone. We are indeed starting the initial betatesting.
This week, we will be sending out invitations to a very selected group of betatesters. We have no serious deadline regarding next stage, when we open the beta up to a much bigger group, but if you twist my arm I would say it's going to happen in 4 to 6 weeks.
Apart from updating D10 Lite and my.Family.is/user today, we are also working on the family.is site itself, it's very close to being ready.
I'll post links here to other beta testers once we are underway, and some testing and updates have taken place.
Until then, silence and mystery :)
|
|
miðvikudagur 02.01.08 15:40
Pirringur
Það er æði margt pirrandi við 365 miðla, "viðskiptamódel" þeirra, útsendingar og oft á tíðum fer meira að segja viðhorf þeirra til áskrifenda í taugarnar á mér.
Í upphafi nýs árs er æskilegt að losa sig við slíkan óþarfa pirring, enda bitnar hann mest á þeim sem pirrar sig, í þessu tilfelli mér.
Ég ætla því að henda þeim punktum sem ég man í augnabliki á þetta bloggblað í von um að skap mitt skáni og ég geti hætt að pirra mig á þessu.
Hér að neðan eru nokkur dæmi um það sem hægt er að kalla lélega þjónustu 365 miðla á sjónvarpssviði.
Útsendingar í vitlausum hlutföllum: Fer fækkandi en enn algengt í fréttum. Það er ekki óalgengt að fólk sem á breiðtjaldssjónvarp horfi á allt í hlutföllunum 16:9 jafnvel þó að útsending sé í 4:3, en að sjónvarpsstöð sendi út efni í 16:9 sem tekið er upp í 4:3, það finnst mér bera vott um lygilegt metnaðarleysi, nú eða hreinlega ótrúlega vankunnáttu.
Í vetur hefur maður oft þurft að horfa á leiki í kolvitlausum hlutföllum. Það skondnasta er þó þegar útsending í 16:9 er áframsend frá 365 í 4:3.
Svo er hægt að monta sig af HD útsendingum..... í vitlausum hlutföllum.... Já, það eru nú meiri gæðin.
Rukkun áskriftargjalda þrátt fyrir ítrekaðar uppsagnir: Af einhverjum sökum virðist illmögulegt fyrir áskrifendur Sýnar að segja upp áskrift að stöðinni. Um þetta veit ég fleiri en eitt dæmi og fleiri en tvö. Systir mín pantaði á haustmánuðum áskrift til eins mánaðar. Hún ítrekaði að hún vildi aðeins fá aðgang að stöðinni í þennan eina mánuð. Að loknum þessum mánuði var þó ekki lokað fyrir stöðina. Ekki heldur eftir að hún hringdi og útskýrði málið fyrir þjónustufulltrúa 365. Og nei, ekki dugði að hringja í annað eða þriðja sinn.
Hvað gerist svo, nú hún fær auðvitað sendan reikning fyrir áskriftargjaldi að Sýn.
Eins og ég sagði hér áðan, þá er þetta ekki einsdæmi, góður vinur minn stendur nú í þessu sama stappi, honum reynist erfitt að segja upp áskriftinni.
Ég vil biðja alla þá sem standa í sömu sporum að gefast nú ekki bara upp og borga áskrift sem neydd er upp á ykkur, þó sumum kunni að finnast það auðveldara. Best væri að þetta fólk hópaði sig saman og talaði við lögfræðing eða að minnsta kosti Neytendasamtökin.
Annars er Sýn skrípastöð að því leyti að þar er farið um víðan völl og fæstir sem hafa áhuga á helmingi þess efnis sem þar er sýnt.
Ég sjálfur hef einungis áhuga á leikjum Arsenal.
Á Sýn eru sýndir nokkrir bikarleikir með mínu liði sem og sumir leikir liðsins í Meistaradeildinni. Því miður ekki allir, sem mér finnst jaðra við vörusvik, þó að mér hafi svo sem hvergi verið lofað því að þeir mundu sýna þá alla.
Fyrir þessa örfáu leiki skulu greiðast 54.000.- kr. eða 43.200.- kr. fyrir þá sem kaupa einnig áskrift að Sýn 2. Það verður að viðurkennast að þetta er óheyrilega dýrt fyrir örfáa leiki.
Sýn á að vera "pay per view", ekki endilega eingöngu, en slíkt á að vera í boði. Þó að verð fyrir stakan leik væri 1000.-, eða jafnvel 2000.- kr. þá myndi fólk í mínum sporum spara mikið þegar upp er staðið.
En kannski er þetta allt byggt á góðmennsku 365, Sýn er jú að þeirra sögn "besta íþróttastöð í heimi", svo það er e.t.v. afkáraleg tilhugsun að einhverjir geti hugsað sér líf án Sýnar.
"Besta íþróttastöð í heimi" er reyndar kolólöglegur auglýsingafrasi sem og svo hrokafullur að það tekur engu tali. Þessi ótrúlega sjálfumgleði er í raun það einstaka atriði sem fer mest í mínar taugar. Það er vel hægt að auglýsa vörur og þjónustu án þess að sjálfsánægjan skíni svo bjart. Í það minnsta verður hún að vera byggð á raunverulegum grunni, en sá grunnur er vandfundinn hér að mínu mati eins og glöggir lesendur hafa áttað sig á.
Að þurfa að greiða fasta áskrift til þess eins að geta horft á u.þ.b. einn leik í mánuði er ekki til þess fallið að auka velvild áhorfenda, svo einfalt er það nú bara.
Lélegar uppfærslur:
- http://syn.visir.is/ -> Engin dagskrá skráð fyrir Sýn eða Sýn 2.
- http://syn.visir.is/?PageID=1895 -> Hvar er Gummi Ben?
- Afruglarar birta nánast aldrei réttar dagskrárupplýsingar. Þar gildir einu hvort um er að ræða stöðvar 365 eða aðrar stöðvar.
- (Allir muna eftir textavarpi Stöðvar 2, sem nú hefur blessunarlega verið aflagt. Það er nefnilega betra að sleppa því að gera eitthvað en að gera það illa.)
Aðrir minni pirringspunktar:
- Athugasemdir fréttaþula eftir hverja einustu frétt í fréttatíma Stöðvar 2.
- Stöð 2 + er alltaf rugluð, líka þegar sent er út efni sem sent var út á Stöð 2 klukkutíma áður í opinni dagskrá.
- Greiða þarf áskrift að Sýn 2 yfir sumarmánuði, þó ekki séu neinar beinar útsendingar.
- Það þarf túlk til að skilja Þorstein Gunnarsson
- Guðjón Guðmundsson á ekki að lýsa knattspyrnuleikjum.
- Kenna þarf Arnari Björnssyni muninn á vinstri og hægri.
- Í eina tíð var dagskrárgerðamönnum Sýnar augljóslega uppálagt að kalla auglýsingar aldrei neitt annað en skilaboð. Nú hefur þessi siður verið aflagður, en þá þarf Guðjón Guðmundsson að taka upp á því að tala alltaf um auglýsingar/skilaboð, eða skilaboð/auglýsingar. Þessi tvö orð eru nú samgróin hjá honum.
- Vitlausar tímasetningar á útsendingum. Það er vonlaust að fá réttar upplýsingar um upphafstíma leikja. Útsendingar eru alltaf hafnar einhverju fyrir leik, stundum 5 mínútum, stundum 10 og stundum fyrr. Í þessu "slotti" fyrir leiki er nánast eingöngu að finna auglýsingar. Mig langar lítið að horfa á þær, þess vegna fer ég fram á að birtur sé réttur upphafstími leikja.
- Endalausar truflanir á beinum útsendingum. Þulir Sýnar/Sýnar 2 eru jafnan duglegir að biðjast velvirðingar á truflunum og taka skýrt fram að bilunin sé erlendis en ekki hjá þeim. Þó að það sé rétt í 100% tilfella þá breytir það ekki þeirri staðreynd að við áhorfendur kaupum efnið af þeim, og það eru þeir sem bera ábyrgð á því gagnvart okkur að efnið komist til skila. Afsláttur af áskriftarverði? Aldrei.
- Afruglarakort virðast með þeim ósköpum gerð að reikna má með því að þau eyðileggist reglulega. Þá þarf maður að gera sér ferð í verslanir Vodafone til að fá nýtt kort. Enn og aftur er ábyrgðin sett í hendur áhorfenda sjálfra.
- Fyndinn punktur varðandi kortin: Á sumum kortum má sjá að prentað hefur verið "this side up", en yfir þann texta er búið að líma miða sem á stendur: "þessi hlið niður".
Enn hækkar verðið: http://stod2.visir.is/?PageID=1454&NewsID=2516 (ok, ok, þetta er í sjálfu sér ekki raunhækkun, en skrítið að ekki þurfi að hækka áskrift að öðrum stöðvum).
Þá hefur skap mitt skánað mjög, og hyggst ég framvegis af fremsta megni leiða hjá mér það sem hingað til hefur pirrað mig :)
Góðar stundir.
Rúnar Haukur | 4.1.2008 22:24:45
|
|
|
miðvikudagur 12.12.07 20:12
And..... another update!
Yup. Another update. rss, profile+emblems+(no)stats. Some dummy content replaced with real content. We've started the skinning process as you can see, mmm blue. Getting really close to beta testing, but I don't think we can start the beta this year. Not only is my schedule full, but everyone is in their busy busy December schedule it seems. Cheers.
|
|
föstudagur 30.11.07 23:31
A big update
It's been a while since I posted anything. But tonight I finally updated D10 Lite and my.family.is again. I've been postponing this update a few times since I've been programming all over the place, and it was never the right time to go ahead and actually update :)
Anyway, I updated.
Mostly D10 Lite, which you can't see here, but also a few things at the my.family.is site as well. I'm playing with a few things I'm not sure we will end up using, like the emblems and the mp3 player, but I can't see a reason these things shouldn't be used in some way.
I won't post any update-list here, just take a look :)
|
|
föstudagur 09.11.07 00:24
A Sidebar!
Wooohooo!
I added a sidebar! It's all dummy, just playing with the look & feel of it. The problem with working on this at night after a full workday is that you aren't really creative.
But still, it's progress I guess :)
|
|
fimmtudagur 08.11.07 05:24
GEISP!
Hrikalega leiðinlegur leikur í kvöld gegn Slavia Prag. Ég óttaðist hreinlega að ég mundi ekki lifa þetta af, svo leiðinlegur var þessi leikur. Hef sennilega sjaldan séð jafn mikið eftir 90 mínútum í fótboltagláp, nema hugsanlega þegar ég fór að sjá Víði í Garði gegn Gróttu.
Sá leikur var reyndar spilaður í ofsaroki, svo miklu að Hljóðbylgju-Bragi sem þá var markmaður gat ekki spyrnt boltanum út úr eigin vítateig. Nei, sennilega var meiri skemmtun fólgin í því að fylgjast með þeim leik.
En við töpuðum allavega ekki þótt þetta væri svona afspyrnuleiðinlegt.
Eftir leik horfðum við Hulda á Donnie Darko, ég í 900 sinn en hún hafði ekki séð hana áður. Skylduáhorf, svo einfalt er það.
Ég ákvað svo að taka smá skurk í my.family.is og er enn að núna klukkan hálf sex, uss!
Brói | 23.11.2007 20:32:27
|
|
|
fimmtudagur 08.11.07 05:15
A little update
First, a Blog-Category Filter: I wasn't happy with the initial filter I threw up last weekend. So I decided to sleep on it, repeatedly. I'm rather happy with the "end result". Instead of selecting one category and filtering onClick, and then either getting just blog from the selected category, or from the selected category and his children.... we now have checkboxes!
Yup, checkboxes FTW!
Here is the deal: If you select a category, all his child categories will get selected as well. Same function vice versa when you deselect a category. You can however uncheck any child categories at your own will. A selected category epxands, and so do all his cute little child categories :)
I've been thinking about various functions:
- Should the category collpase on deselect? I'm not sure it would qualify more as a feature than a disorienting annoyance.
- Would it perhaps be better to click a category to select his kids instead of automating it onCheck? Who would ever understand that without extensive testing and IQ over 200?
As I said, I think it's best the way it is.
I also added a few other minimal things like the selected state of the Blog and Albums buttons, as well as checking to see if the site works when set to a fixed width. Which it almost does, just some minimal css things to fix the current overflow created by the huge image in the first post.
Developing has slowed down a bit for now since we (D10.is) have 3 sites opening in 3 weeks. I'm hoping to pick up the pace again at the end of the month, we still aim at betatesting this year.
|
|
mánudagur 29.10.07 17:17
The Secret
|
|
sunnudagur 28.10.07 19:12
1-1 já, tja jæja já, sei sei
Það fór nú eins og ég sagði við þónokkra vini mína sem búa við þá bölvun að styðja Liverpool. Þeir voru flestir hverjir afar svartsýnir fyrir leik. Einhvern veginn fann ég á mér að þetta yrði miklu jafnara en flestir héldu eftir úrslit vikunnar.
Reyndar geta Liverpool menn verið sáttir mjög við þetta stig sem þeir fengu. Ekki gott að brenna af tvisvar fyrir opnu marki.
Annars fékk ég taugaáfall þegar ég kveikti á sjónvarpinu og Gaupi blasti við á skjánum, hélt að hann ætti enn einu sinni að lýsa Arsenal leik. Gaupi hefur nefnilega lýst 75% Arsenal leikja á þessu tímabili. Ég held t.d. að hann hafi verið settur á alla Meistaradeildarleiki okkar.
Gaupi er eins og spiladós, maður veit alveg hvað hann segir næst. Hann er með frasapott við hliðina á sér sem hann veiðir upp úr, og það er svo sem ágætis skemmtun að giska á næsta frasa, en það bætir litlu við leikinn hins vegar.
Ég hef leikið mér að því í haust að segja Huldu hvað Gaupi muni segja næst, með svona 50% árangri.
Þegar þetta heppnast, þá hefur rómurinn hins vegar verið réttur í 100% tilfella.
Nú er svo bara að sjá til hvort að Gaupi verði settur á næsta Arsenal leik. Eins er alltaf spennandi hvort að Sýn sjónvarpi leikjum í réttum hlutföllum eða ekki. Það gildir reyndar um ýmislegt efni á Stöð 2 líka, þar er helmingur frétta yfirleitt í vitlausum hlutföllum.
Það finnst mér lýsa miklum metnaði :)
En nú er þetta orðið röfl og ég get því talist nokkuð normal bloggari sem er ágætt.
Góðar stundir.
Brói Sig | 29.10.2007 18:15:19
|
|
|
laugardagur 27.10.07 21:05
Albums are up!
I wouldn't say the albums are 100% functional, but the most important parts are. I'll explain what I'm talking about. If you take a look at the album I've just created, you'll notice there are 260 images there. To create that album, all I had to do was to grab all all my screenshots from Ep2, throw them in a zip file and upload it. D10 Lite took care of the rest. Here is how it works:
- Zip file is saved at server.
- All images are extracted.
- Zip file is then deleted.
- And finally, thumbnails are created automatically from all images.
This new album system is very different from the album system in D10 Pro. It doesn't rely much on the use of a database, but in Pro everything is registered in a db. Not registering images in a database has it's pros and cons. In D10 Pro you can add a title and text to each image, something I haven't planned on implenting in Lite. It's also harder to allow users to comment on images, set up a viewcount for images etc. But after all, the aim here is Lite, quick & easy is our main goal. I will however implement this zip extraction into D10 Pro :) Hopefully I'll finish it before the tuesday update.
|
|
föstudagur 26.10.07 16:29
Comments added to the blogsystem
I haven't started on the albums yet, but I've added a few things to the blog system. Readers can now comment, what's a blog without comments anyway.
I'm trying hard to keep the clean look & feel as I add more features. Readability is priority nr. 1. So there is plenty of white space and minimal graphics. Links are underlined. Speaking as a designer I'm not a fan of underlined links, most of the time I only use underlining on mouseover. But in the end, it's more user friendly to keep them underlined at all times.
I'm not sure how much time I'll have during the weekend to work on the albums systems, since there are quite a few projects being worked on at D10.is. There is also a D10 update scheduled for next Tuesday.
I'll try to steal a few hours though, I really want the albums system up and running asap. Have a nice weekend everyone :)
Gudmo | 26.10.2007 16:36:04
|
|
|
mohmaaytah | 27.10.2007 03:22:01
|
|
|
þriðjudagur 23.10.07 21:54
Arsenal 7 - 0 Slavia Prag
Það var hreint út sagt ótrúleg lífsreynsla að horfa á þennan leik. Þetta var líkara sirkus en fótbolta, minnti mann einna helst á Harlem Globetrotters.
Það var leitun að þeim Arsenal manni sem ekki fór á kostum. Meira að segja Almunia varði vel þó hann hafi verið í hlutverki áhorfanda lengst af.
Þetta gæti verið skemmtilegasti fótboltaleikur sem ég hef nokkurn tímann séð.
Hitt er svo annað mál að svindlið var talsvert í Kænugarði, þar átti augljóslega að dæma víti á Vidic og henda manninum út af. Í staðinn var auðvitað dæmt vægast sagt vafasamt víti á hinum enda vallarins. Held að Rúnar vinur minn og mikill Man U. maður ætti að fara að róa sig í þeim kenningum að Arsenal og Liverpool fái sérstaka afgreiðslu hjá dómurum. Þar fer Man. U ætíð fremst meðal jafningja.
-DJ- | 26.10.2007 16:21:02
|
|
|
sunnudagur 21.10.07 18:42
Documenting the progress
I've been working on D10Lite today. The albums system is now 50% done or so. I've also added images and files functionality to the editor.
Users can now upload images/files and display/link to them.
 This is the D10 Lite Login Screen.

On this image you can see the blogeditor. The image manager has been opened and I'm about to upload the Login Screen image to my blog. I also expanded the start menu. As you can see the basic layout is simple to say the least, but the editor as well as the menu are the same as in D10 Webware. However, since simple is the keyword in the Lite version, there will be no skinning of D10 Lite available for users. Site Settings is also something we won't spend time on, at least for now.
I don't expect any progress until next weekend. But next sunday I'm hoping the albums system will be finished.
Derek | 27.10.2007 04:13:48
|
Derek | 27.10.2007 04:18:42
|
|
|
laugardagur 20.10.07 14:57
D10 Lite & my Family
I've been planning the myFamily & myWorld projects for over 6 years. We started on a similar projects 2 or 3 years ago, but had to throw in the towel for various reasons. Now I've finally started up the myFamily project. The backend will be a Lite version of D10 Webware, and we decided to use the original name "D10 Lite" :) At this time I won't go into details regarding these projects, that can wait until later. This is only the first step of many. I'm surprised how fast things have been going. Since this is a pet project I've decided to work on this during my free time, which basically means weekends. In 3 days I've managed to create the D10 Lite Logo as well as the D10 Lite basic design, program D10 Lite basic environment & navigation, program this blog system with D10 Lite, set up MySQL as a backend, and design the new myFamily Splash. Oh, and of course the design template for this blogsite :) I haven't added any images functions to this blog yet, so pics will be made available later. But hopefully things will continue as fast. I'm also happy to move my blog from Gamespot, the blogsystem there is annoying in many ways to say the least. I didn't want to move to blogger, blogspot or anywhere else as I knew it would just make me postpone this project once again :)
|